Hjónavígslan er byggð upp á þennan hátt:
BRÚÐARMARS.
SÁLMUR.
ÁVARP.
-
Hefst með signingu og svo ræðan.
SÁLMUR?
-
Að sálminum loknum ganga brúðhjónin að gráðum.
RITNINGARORÐ OG HJÓNAVÍGSLA.
-
Fyrst lesnir textar,
-
síðan brúðgumi spurður tveggja spurninga. Þar á eftir brúður einnig.
-
Síðan er skipst á hringum.
-
Þau heilsast síðan með hægri hönd er prestur biður þau um það. Prestur leggur hönd sína yfir samanteknar hendur þeirra og lýsir vígslu.
-
Þá krúpa brúðhjónin á gráðurnar, svaramenn setjast saman og er beðið bænar sem endar á “…..um aldir alda.” Allir svara: “amen”. Síðan biðja allir saman Faðir vor.
-
Þá er lýst blessun og brúðhjón rísa á fætur, kyssast og setjast saman.
LAG/SÁLMUR?
(BÆN.)
(LAG/SÁLMUR.)
ÚTGÖNGUMARS.
Gestir:1653 Gestir í dag: 3 Gestir í allt: 2626202