Sunnudaginn 30. sept. verður efnt til helgigöngu frá Gufuskálum sem lýkur með messu í Ingjaldshólskirkju. Helgistundir með keltnesku trúarívafi verða haldnar á Gufuskálum, við Írskrabrunn og við steinhleðslur í flæðarmálinu.
Þetta er í annað sinn sem slík helgiganga er farin, en helgigangan fyrir tveimur árum vakti athygli og ánægju.
Lagt verður af stað frá kirkjunni kl. 12 á hádegi og ekið í rútu að ,,fiskbyrgjum” við Gufuskála. Þaðan verður gengið með keltneskan sólkross að einu byrgjanna og þar haldin stutt helgistund. Ýmsir telja, að þessi byrgi séu eldri en talið hefur verið og geti jafnvel verið leifar af íverustöðum keltneskra einsetumanna. Þeir dvöldust í slíkum býkúpulaga steinbyrgjum á afskekktum stöðum á Írlandi og Skotlandi en höfðu jafnframt samfélag sín á milli.
Frá byrgjunum verður ekið að Írskrabrunni og gengið að brunninum með krossinn og haldin þar helgistund. Þaðan verður gengið að sérstæðri steinhleðslu niður við flæðarmál. Lögun hleðslunnar gæti bent til fornrar kirkju þótt þar kunni áður fyrr að hafa verið verbúð. Þar fer einnig fram stutt helgistund. Síðan verður ekið aftur að Ingjaldshólskirkju, þar sem messa hefst kl. 14.
Leiðsögu- og sagnamenn í göngunni verða þeir Skúli Alexandersson og Sæmundur Kristjánsson. Sr. Óskar Ingi Ingason, sóknarprestur, og sr. Gunnþór Þ. Ingason, prestur á Biskupsstofu á sviði helgihalds og þjóðmenningar, leiða helgistundir göngunnar og messuna í kirkjunni. Göngufólk og heimamenn lesa ritningarorð og fornsögutexta. Kay Wiggs leikur á orgel og stjórnar Kór Ingjaldshólskirkju, sem leiðir safnaðarsöng.
Eftir messu verður boðið upp á kaffi og djús í safnaðarheimili kirkjunnar.
Sóknarnefnd Ingjaldshólskirkju, Átthagastofa Snæfellsbæjar, Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull, lista og menningarnefnd Snæfellsbæjar og Starfshópur þjóðkirkjunnar um helgistaði á föruleiðum, standa að þessu sérstæða helgihaldi, er tengir saman þjóðmenningu, trú og land, sögu og samtíð. Dagskráin er fjölskylduvæn og allir hjartanlega velkomnir.