Starfið hefur að mestu leyti verið með hefðbundnu formi. Reynt var að hafa helgihald fjölbreytt. Starfið í Brimilsvallakirkju var með hefðbundnu formi.
Guðsþjónustur í sóknunum og prestakallinu:
2017 (2016) | Guðsþjónustur | Barnaguðsþjónustur | Aðrar | Í allt | Til altaris | Kirkjugestir |
Ingjaldshólskirkja | 12 (12) | 6 (5) | 2 (1) | 20 (18) | 76 (161) | 1089 (1061) |
Ólafsvíkurkirkja | 34 (31) | 1 (4) | 7 (9) | 42 (44) | 306 (132) | 2190 (1920) |
Í allt | 46 (43) | 7 (9) | 9 (10) | 62 (62) | 382 (293) | 3279 (2981) |
Í báðum sóknunum er öflugt tónlistarlíf með organistum og kirkjukórum starfandi. Í Ólafsvíkursókn er einnig starfandi kórstjóri. Við kirkjurnar starfa einnig öflugir meðhjálparar og kirkjuverðir sem gott er að leita til ásamt sjálfboðaliðum.
Önnur prestverk voru eftirfarandi:
2017 (2016) | Skírnir | Fermingar | Brúðkaup | Jarðar-farir | Kistu-lagningar | Jarð-settir | Í allt | Viðstaddir athafnir |
Ingjaldshóls-sókn | 3 (6) | 6 (5) | 3 (1) | 2 (1) | 1 (1) | – (-) | 15 (14) | 365 (436) |
Ólafsvíkursókn | 4 (5) | 10 (10) | 3 (2) | 3 (6) | 1 (8) | – (-) | 21 (31) | 605 (1426) |
Annars staðar | 0 (0) | 1 (0) | 7 (0) | 4 (1) | 2 (1) | 1 (-) | 15 (7) | 960 (268) |
Í allt | 7 (11) | 17 (15) | 13 (3) | 9 (9) | 4 (7) | 1 (-) | 51 (52) | 1930 (3493) |
(2017: Ein jarðarför fór fram í Ólafsvíkursókn sem sóknarprestur annaðist ekki. Ein jarðarför fór fram í Ingjaldshólssókn og auk þess þrjú brúðkaup fóru fram í Ingjaldshólssókn sem sóknarprestur annaðist ekki, öll í afleysingu. Sóknarprestur kistulagði tvisvar utan prestakalls, jarðsöng einu sinni og gifti einu sinni.)
(2016: Engin athöfn fór fram í Ólafsvíkursókn sem sóknarprestur annaðist ekki. Ein skírn fór fram í Ingjaldshólssókn og eitt brúðkaup sem sóknarprestur annaðist ekki, bæði í afleysingu. Sóknarprestur kistulagði tvisvar utan prestakalls, jarðsöng einu sinni og gifti einu sinni.)
Annað starf.
Í kirkjunum fór fram margt annað safnaðarstarf. 15 börn luku fermingarfræðslu 2015-16. 15 fermingarbörn hófu og luku fermingarfræðslu haustið 2017. Farið var í fermingarbarnamót að Laugum í Sælingsdal í nóvember. Fræðslutímar voru að jafnaði aðra hverja viku í Ólafsvíkurkirkju.
2017 (2016) | Ingjaldshólskirkja | Ólafsvíkurkirkja | Prestakallið allt |
Kirkjukór | 239 (354) | 706 (513) | 945 (867) |
Barnaguðsþjónusta | 0 (0) | 15 (15) | 15 (15) |
TTT | 10 (109) | 10 (109) | |
Æskulýðsstarf | 119 (217) | 119 (217) | |
Skólaheimsóknir | 62 (64) | 106 (111) | 168 (175) |
Foreldramorgnar | 73 (93) | 73 (93) | |
Vinir í bata | – (-) | – (-) | |
Fermingarfræðsla | 205 (367) | 205 (367) | |
Tónleikar | 51 (5) | 483 (475) | 534 (525) |
Annað | 40 (100) | 333+825 (20+381) | 373+825 (120+381) |
Í allt | 362 (568) | 2030+825 (1920+381) | 2392+825 (2488+381) |
Æskulýðs- og barnastarfið sá sóknarprestur um, en fram á vor aðstoðaði Sigurbjörg Jóhannesdóttir við. Farið var á landsmót Þjóðkirkjunnar um haustið með 19 unglinga og 3 leiðtoga og gekk vel.
Sunnudagaskóli var reyndur þrisvar Ólafsvíkurkirkju og var þátttaka dræm. Auka þarf kraft í barnastarfið og jafnvel athuga með að hafa námskeið. TTT lá niðri á haustönn. STN (sex til níu ára starf) var ekki starfrækt í vetur. Ljóst er að það þarf að setja meiri kraft í barnastarfið og fjölga starfsmönnum.
Þátttakendur í foreldramorgnum kusu að hittast til skiptis hver hjá annarri fram á haust, en þeir hafa ekki verið tíðir síðan og láu oft niðri á árinu.
Starfið Vinir í bata lá niðri á árinu. Lionsklúbbur Ólafsvíkur og kvenfélag Ólafsvíkur funduðu í kirkjukjallaranum, þó ekki Lionsmenn veturinn 2017-18. Eins voru safnaðarheimilin leigð út til funda og veisluhalds.
Árlega er guðsþjónusta á uppstigningardag með eldri borgurum í Snæfellsbæ. Vikulega var farið á Jaðar og í heimsókn. Þar að auki voru helgistundir að jafnaði einu sinni í mánuði auk athafna á hátíðum. Haldnar voru nokkrar minningarstundir.
Sóknarprestur húsvitjaði 49 sinnum á árinu og sinnti 20 viðtölum og útköllum.
Fastir viðtalstímar voru í kirkjunum og viðhaldið heimasíðu fyrir prestakallið, kirkjanokkar.is og fermingarsíðu, kver.kirkjanokkar.is.
Sóknarprestur sá um utanumhald á starfi sóknarsamlags Ólafsvíkur- og Ingjaldshólssókna.
Tölfræði.
Aðsókn 2017 | Fjöldi | % | Í allt | Guðsþjónustur | Prestverk | Félagsstarf | Í allt |
Ingjaldshólssókn Íbúar (2016) | 500 (517) | 1816 (2065) | 2,18 (2,05) | 0,73 (0,84) | 0,72 (1,10) | 3,63 (3,99) | |
Ólafsvíkurkirkja Íbúar (2016) | 954 (963) | 5650 (5647) | 2,30 (1,99) | 0,63 (2,65) | 2,99 (2,39) | 5,92 (5,86) | |
Prestakallið allt Íbúar (2016) | 1454 (1480) | 7466 (7712) | 2,26 (2,01) | 0,67 (1,26) | 1,96 (1,94) | 5,13 (5,21) | |
Ingjaldshólssöfnuður (2016) | 354 (375) | 71 (73) | 1816 (2065) | 3,08 (2,83) | 1,03 (1,16) | 1,02 (1,51) | 5,13 (5,51) |
Ólafsvíkursöfnuður (2016) | 682 (702) | 71 (73) | 4825 (5266) | 3,21 (2,74) | 0,89 (2,03) | 1,96 (2,74) | 7,07 (7,50) |
Báðir söfnuðir (2016) | 1036 (1077) | 71 (73) | 6641 (7331) | 3,17 (2,77) | 0,94 (1,73) | 2,21 (2,31) | 6,41 (6,81) |
Margt annað má nefna, þó það sé ekki gert hér. Jafnt starfsmenn sem sjálfboðaliðar í starfi kirkjunnar eru hverju starfi nauðsynlegir, sem og allir velunnarar. Fyrir þá alla þökkum við og biðjum góðan Guð að blessa starfið í söfnuðunum og okkur öll.
18. apríl 2018.
____________________________
Óskar Ingi Ingason, sóknarprestur.