Skýrsla sóknarprests 2021

Starfið í kirkjunum hefur verið að miklu leyti litað af samkomutakmörkunum vegna farsóttar. Vegna þess höfum við áfram þurft að að taka upp og streyma athöfnum til safnaðarins. Mikið verk hefur verið unnið til að koma upp búnaði og er verið að ljúka að setja upp nýjan hljóðbúnað í kirkjunum. Reynt var að hafa helgihald fjölbreytt. Ljóst er að næsta haust þarf að setja nýjan kraft í guðsþjónusturnar til að byggja upp þátttöku eftir rúmlega tvö erfið ár. Á Ingjaldshóli var tónlistarguðsþjónusta með aðkeyptum tónlistarmönnum í október sem tókst vel. Áfram þarf að vinna að fjölbreyttu helgihaldi sem nær til safnaðarins.

Starfið í Brimilsvallakirkju lá að mestu niðri vegna farsóttar. Kirkjan verður 100 ára 2023 og þarf að undirbúa afmælishald og framkvæmdir við kirkjuna.

Guðsþjónustur í sóknunum og prestakallinu:

2021 (2020)GuðsþjónusturBarna-guðsþjónusturAðrarÍ alltTil altarisKirkjugestir
Ingjaldshólskirkja14 (12)5 (0)0 (2)19 (14)81 (21)442 (150)
Ólafsvíkurkirkja20 (35)0 (9)6 (4)26 (48)103 (103)908 (812)
Í allt34 (48)5 (9)6 (6)45 (62)184 (124)1.350 (962)

Í báðum sóknunum er öflugt tónlistarlíf og kirkjukórar starfandi, eins og sóttvarnareglur hafa leyft. Í Ingjaldshólssókn er Elena Makeeva organisti, en í Ólafsvíkursókn er Veronika Osterhammer kórstjóri, en Nanna Þórðardóttir hefur verið lausráðin undirleikari og Valentina Kay leysti hana af eftir þörfum. Við kirkjurnar starfa einnig öflugir meðhjálparar og kirkjuvörður á Hóli sem gott er að leita til ásamt sjálfboðaliðum. Allt árið vantaði kirkjuvörð í Ólafsvík og sóknarnefnd og prestur séð um það sem þarf að sinna. Bæta þarf úr því.

Streymi: Í Ingjaldshólskirkju var streymt 5 helgistundum og voru skoðuð 197 sinnum. 1 einkaathöfn var streymt með 78 skoðunum, samtals 6 athafnir með 275 skoðunum. Í Ólafsvíkurkirkju var streymt 8 helgistundum og voru skoðuð 428 sinnum. 5 einkaathöfnum var streymd með 1.221 skoðunum, samtals 13 athafnir með 1.679 skoðunum. Í báðum kirkjunum 19 streymi með 1.954 skoðunum. Að meðaltali hefur því hver íbúi séð streymi tvisvar.

Önnur prestverk voru eftirfarandi:

2021 (2020)SkírnirFermingarBrúðkaupJarðar-farirKistu-lagningarJarð-settirÍ alltViðstaddir athafnir
Ingjaldshóls-sókn6 (7)8 (2)0 (3)0 (6)0 (4)2 (0)16 (22)92 (553)
Ólafsvíkursókn3 (2)7 (7)1 (1)5 (5)5 (4)0 (0)21 (19)664 (809)
Annars staðar0 (2)0 (0)2 (0)1 (2)1 (2)0 (1)4 (7)105 (344)
Í allt9 (11)15 (9)3 (4)6 (13)6 (10)2 (1)41 (48)861 (1706)
Ekki er talið með viðstöddum ef athöfn fram fór í guðsþjónustu eða barnaguðsþjónustu.
(2021: Ein skírn fór fram á Hellissandi sem sóknarprestur annaðist ekki. Sóknarprestur gifti tvisvar, jarðaði og kistulagði einu sinni utan prestakalls.) (2020: Ein útför og kistulagning fór fram í Ólafsvíkurkirkju sem sóknarprestur annaðist ekki. Sóknarprestur skírði tvisvar, jarðaði og jarðsetti einu sinni utan prestakalls.)

Annað starf.

Í kirkjunum fór fram margt annað safnaðarstarf. 15 börn luku fermingarfræðslu 2020-21. 9 fermingarbörn luku fermingarfræðslu vorið 2022. Ekki var farið í fermingarbarnamót síðasta haust vegna farsóttar. Fræðslutímar voru að jafnaði aðra hverja viku í Ólafsvíkurkirkju.

2021 (2020)IngjaldshólskirkjaÓlafsvíkurkirkjaPrestakallið allt
Kirkjukór142 (156)499 (232)641 (388)
Barnaguðsþjónusta42 (-)0 (9)42 (9)
TTT
0 (0)0 (0)
Æskulýðsstarf
63 (31)63 (31)
Skólaheimsóknir58 (45)114 (39)172 (84)
Foreldramorgnar
0 (0)0 (0)
Vinir í bata0 (0)
0 (0)
Fermingarfræðsla
186 (237)186(237)
Tónleikar0 (0)220 (0)220 (0)
Annað57 (60)129+388 (140+573)186+388 (200+573)
Í allt299 (261)1211+388 (688+573)1510+388 (949+573)

Æskulýðs- og barnastarfið sáu Elín Sigurveig Jónsdóttir og Kristbjörg Kristjánsdóttir um, ásamt sóknarpresti. Haustið 2021 var landsmót á netinu, en starfið var markað af samkomutakmörkunum. Mikill kraftur er í starfsmönnum í barna- og æskulýðsstarfinu

Kirkjuskóli var í Ingjaldshólskirkju á sunnudögum fyrir áramót og 2 skipti á vorönn 2021, en ekki í Ólafsvíkurkirkju vorið 2022, vegna samkomutakmarka. TTT lá niðri. STN (sex til níu ára starf) var ekki starfrækt. Umsjónarmaður var sóknarprestur.

Þátttaka í foreldramorgnum hefur minnkað undanfarin ár og lá niðri vegna farsóttar.

Starfið Vinir í bata lá niðri. Lionsklúbbur Ólafsvíkur og Kvenfélag Ólafsvíkur funduðu í safnaðarheimili í Ólafsvík. Eins voru safnaðarheimilin leigð út til funda og veisluhalds. Rómversk kaþólska kirkjan messaði 15 sinnum.

Guðsþjónusta á uppstigningardag með eldri borgurum í Snæfellsbæ féll niður vegna samkomutakmarkanna. Vikulega var farið á Jaðar og í heimsókn á meðan heimilt var, sem var ekki oft. Eins voru mánaðarlegar helgistundir þar eftir því sem hægt var, auk athafna á hátíðum. Haldnar voru nokkrar minningarstundir. Sóknarprestur húsvitjaði 16 sinnum á árinu og sinnti 6 viðtölum og útköllum.

Fastir viðtalstímar voru í kirkjunum og viðhaldið heimasíðu fyrir prestakallið, kirkjanokkar.is, fermingarsíðu, kver.kirkjanokkar.is og upplýsingasíðu fyrir hjónavígslur weddings.kirkjanokkar.is. Sóknarprestur sá um utanumhald á starfi sóknarsamlags Ólafsvíkur- og Ingjaldshólssókna.

Tölfræði.

Aðsókn 2021Fjöldi%Í alltGuðsþjónusturPrestverkFélagsstarfÍ allt
Ingjaldshólssókn Íbúar (2020)518 (512)
790 (964)0,85 (0,29)0,18 (1,08)0,58 (0,51)1,53 (1,88)
Ólafsvíkurkirkja Íbúar (2020)999 (1026)
3171 (2882)0,91 (0,79)0,66 (0,79)1,6 (1,23)3,17 (2,81)
Prestakallið allt Íbúar (2020)1517 (1538)
3961 (3846)0,89 (0,63)0,5 (0,89)1,25 (0,99)2,61 (2,5)
Ingjaldshólssöfnuður (2020)331 (332)64 (65)790 (964)1,24 (0,45)0,28 (1,67)0,9 (0,79)2,39 (2,9)
Ólafsvíkursöfnuður (2020)666 (691)67 (67)2783 (2309)1,36 (1,18)1,0 (1,17)1,82 (1,0)4,18 (3,34)
Báðir söfnuðir (2020)997 (1023)66 (67)3573 (3273)1,35 (0,94)0,76 (1,33)1,51 (0,93)3,58 (3,2)
Í töflunum kemur fram hversu oft hver íbúi eða safnaðarmeðlimur sækir starfið að meðaltali á ári og hversu stórt hlutfall íbúa er í Þjóðkirkjunni. Í félagsstarfi eru ekki aðrir tónleikar eða annað ótengt kirkjunni. Streymi er ekki í tölum.

Margt annað má nefna, þó það sé ekki gert hér. Starfið byggir á áhuga safnaðarins og þekkingu og áhuga starfsmanna og sjálfboðaliða, sem og allra velunnara. Fyrir það þökkum við og biðjum góðan Guð að blessa starfið í söfnuðunum og söfnuðina.

25. mars 2022.

____________________________

Óskar Ingi Ingason, sóknarprestur.

Gestir:276 Gestir í dag: 2 Gestir í allt: 2626314